Í þessum tíma fjöllum við um núvitund og hvernig við getum ræktað með okkur færni í að dvelja meira í núinu. Við byrjum á því að kanna hvað núvitund er og hvaðan hún kemur, síðan fjöllum við um hver ávinningurinn er að því að stunda núvitundaræfingar reglubundið. Að lokum komum við að aðalmálinu en það er hvernig stundar maður núvitunaræfingar. Í þessum tíma eru nokkur verkefni og núvitundaræfingar gerðar. Til þess að fá sem mest út úr námskeiðinu er mikilvægt að gefa sér tíma til að gera þessi verkefni og hugleiðsluæfingarnar.
Njóttu tímans og gangi þér sem best að tileinka þér efni hans.
Vinnubók
Æfing 1. Hvað er núvitund í þínum huga?
Áður en lengra er haldið bið ég þig um að opna vinnubókina og gera fyrsta verkefnið. Ekki leita af "rétta" svarinu við þessari spurningu á Google því þessi spurning er ekki til þess að kanna þekkingu þína á efninu heldur til að gefa þér færi á að skoða af forvitni hvaða hugmyndir þú hefur í dag um hvað núvitund er.
Hvað er núvitund?
Í þessu myndbandi er að finna skilgreningu á hvað núvitund er og umfjöllun um hvaðan núvitund er uppruninn og hvernig hún komst inn í vestræna menningu og heilbrigðisvísindi.
Hugleiðsluæfing - öndun
Hér að neðan er 15 mínútna hugleiðsluæfing þar sem athyglinni er beint að andadrættinum. Heimavinnan eftir þennan tíma er að hlusta á þessa æfingu daglega í eina viku. Mikilvægasti hlutinn af þessum tíma er að stunda núvitundaræfingarnar, svo gefðu þér endilega tíma til þess.
Vinnubók
Æfing 2. Hvernig var að gera æfinguna?
Þegar þú ert búin(n) að hlusta á æfinguna vil ég biðja þig um að opna vinnubókina og gera æfingu 2 sem felst í því að skrifa niður hver upplifun þín af því að gera æfinguna var.
Hvernig gerir maður núvitundaræfingar?
Í myndbandinu hér til hliðar er farið í gegnum grunn núvitundaræfingu þar sem athygli er beint að andadrættinum og henni lýst skref fyrir skref. Þessi hugleiðsluæfing verður svo hluti af daglegri heimavinnu. Hér er líka fjallað um fleiri tegundir af núvitundaræfingum.
Áhrif þess að iðka núvitund
Undanfarna 2 áratugi hafa áhrif núvitundar á heilsu og líðan fólks verið rannsökuð mikið og í ljós komið að núvitund hefur jákvæð áhrif á okkur á marga vegu. Í þessu myndbandi er fjallað um hvað núvitund getur reynst gagnleg við og fjallað um nokkrar rannsóknir stuttlega.
Vinnubók
Æfing 3. Hvað langar þig til þess að fá út úr núvitundaræfingum?
Eftir að hafa heyrt um ávinning þess að stunda núvitundaræfingar hvað er það sem þig langar helst til þess að fá út úr því að stunda núvitundaræfingar? Skrifaðu svarið í vinnubókina á blaðsíðu 7.
Nokkur góð ráð
Eins og við höfum heyrt hér í dag er núvitund áhrifamikil leið til þess að hlúa að heilsu okkar og vellíðan. Til þess að uppskera árangur af þessari aðferð er mikilvægt að stunda núvitundaræfingar reglubundið en það getur reynst okkur erfitt að bæta þeim inn í daglega rútínu. Hér í myndbandinu til hliðar eru nokkur góð ráð um hluti sem geta stutt við okkur og hjálpað okkur að festa þessa iðkun í sessi.
Vinnubók
Æfing 4. Dagleg hugleiðsla í eina viku.
Nú er komið að því að iðka það sem við höfum verið að fjalla um hér í dag - núvitund. Eins og fyrr segir er mikilvægt að stunda æfingarnar reglubundið, helst daglega til þess að uppskera árangur af þeim. Heimavinnan eftir þennan tíma er að hugleiða daglega í eina viku og styðjast við hugleiðsluæfinguna Öndun - 15mínútur, sem þú finnur hér á vefsíðunni og í appinu Stilla. Opnaðu nú vinnubókina á blaðsíðu 8 og byrjaðu að fylla inn í áætlunina þar.
Í lok kaflans um núvitund finnur þú hugleiðsludagbók, þar sem þú skráir upplifun þína af æfingunni eftir hvert skipti út vikuna.
Gangi þér sem allra best og njóttu þess að hlúa að þér með því að hugleiða.
“Meditation practice isn’t about trying to throw ourselves away and become something better. It’s about befriending who we are already.”